Himingeimar
Himingeimar image

Leikum okkur saman

Heimar og Himingeimar snúa aftur í september 2027

Heimar og Himingeimar er samkoma búningaáhugafólks og fólks í búningaíþróttamennsku til að kynna og upphefja jákvæða og þroskandi leikhegðun fyrir fólk á öllum aldri. Staðið er að heilli helgi af skemmtun, sköpun, keppnum, smiðjum og kynningum auk námskeiða í aðdraganda samkomunnar. Maðurinn er aldrei of gamall til að leika sér, skapa og gera lífið skemmtilegra og nota ímyndunaraflið til að ferðast bæði um heima og himingeima.

3

Dagar
af skemmtun, sköpun, skylmingum, og stórkostlegum nördaskap

30+

Smiðjur og viðburðir
Komdu, skoðaðu alla flóruna og taktu þátt

5

Heimar
til að taka þátt í, upplifa og skoða

DAGSKRÁ

Dagskrá fyrir Heima og Himingeima 2027 kemur innan skamms

Dagskrá fyrir Heima og Himingeima 2027 kemur innan skamms

Dagskrá fyrir Heima og Himingeima 2027 kemur innan skamms

SMIÐJUR

Það verður nóg að gera hjá okkur. Komdu og vertu með! Efni er ókeypis og við getum skapað og búið til á meðan birgðir endast. Smiðjurnar geta aðeins tekið við vissum fjölda, og fólk getur tekið frá pláss á þjónustuborði í smiðjurými. Tekið er inn eftir númerum og plássi. Ef fólk er seint fyrnist miðinn. 
Hér eru nokkur dæmi um það sem hefur verið í boði:

Boffervopn

Boffervopn eru sverð búin til úr frauði utan um plastkjarna. Þau eru notuð í ævintýrakvikspuna og herkænskuleikjum. Þegar sverðið er tilbúið og tékkað af okkar fólki er hægt að fara út á bardagavöllinn og taka þátt í bofferslag. Boffersmiðjur verða með reglulegu millibili alla dagana, og fara eftir efnisframboði.

Maille

Maille/hringabrynjugerð er listin að setja saman litla málmhringi og/eða litlar málmplötur sem stundum eru kallaðar drekarhreistur (dragonscale) til að búa til fallegar brynjur og skartgripi. Hér má koma við hjá listafólkinu frá Blood, Sweat & Tyr og læra að klemma grunn í skartgripagerð úr drekahreistri. 

Skrautsaumur

Skrautsaumur fyrir byrjendur og lengra komna - sama hvort þú ert að vinna í sögulegum ballkjól, þjóðbúningi eða japönsku cosplay þá er alltaf gott að geta komið skreytingum á rétta staði!

Töfradrykkir

Það er alltaf pláss fyrir fleiri leikmuni! Komdu við í smiðjunni og búði til töfradrykki, sem má svo hengja á belti eða fela í pyngjum þegar farið er á stjá að leita ævintýra!

Heimar

Viltu fara út í geim? Leggja upp í ævintýraför og hvílast á förumannakrá? Ferðast aftur í tímann? Hér er brot af ævintýraheimunum okkar...

Stjörnuspillirinn

Vissir þú að í Stjörnuspillisherskipum Keisaraveldisins eru yfir 37.000 manns í áhöfn? Við erum kannski ekki svona mörg, en við erum með Stjörnuspilli! Komdu með okkur í ferðalag til stjörnuþöku langt, langt í burtu, - eða komdu við og taktu þátt í vélmennaveiðum; hver veit nema að þú getir nælt þér í verðlaun!

Förumannakráin

Vertu velkomin! Kemur þú langt að? Hvað hefur á daga þína drifið? Komdu, hvíldu þig, hlustaðu á tónlist, spilaðu á spil (passaðu þig á stuttlungnum, þeir eru gjarnir á að svindla), og njóttu þín. Vertinn á förumannakránni vill gjarnan heyra hvað þú hefur verið að gera - og hver veit, kannski sendir hann þig út af örkinni í nýja sendiför...

Fortíð og flottheit

Söguöld, miðaldir, endurreisn - og svo sjálfir Versalir! Komdu og taktu í spil og heyrðu heitasta slúðrið um aðalinn! Spilum Baccarolle, spáum í rúnir, saumum út, púðrum hárkollurnar, berum blýfarða framan í - nei, við skulum ekki gera það, öllu má nú ofgera! En, það sem skiptir mestu er...hvenær vilt þú vera í dag?

Cosplay-keppnin

Cosplay er þegar fólk klæðist búningi sem er annanhvort endursköpun á persónu úr einhverju afþreyingarefni, eða hannar sinn eigin búning sem passar inn í fyrirfram skapaðan söguheim.

Keppnin er öllum opin og með sérstökum flokkum til að tryggja sanngjarnt mat á mismunandi stigum kunnáttu og reynslu. Til viðbótar við þekktar persónur eru eigin persónur (original characters) leyfðar. Allir búningar úr hvers kyns búningaáhugamálum er gjaldgengir í þessari keppni.

Keppt er í þremur flokkum:
Ungliðaflokki (undir 14 ára)
Cosplayflokki (14 ára og eldri)
Handverksflokki (meira en 60% af búningi er heimagerður/ekki aðkeyptur).

Heimar og Himingeimar eru þátttakendur í Nordic Cosplay Championship, og mun sigurvegari í handverksflokki keppa fyrir Íslands hönd á NärCon ráðstefunni í Svíþjóð.

Um heima

Heimar og Himingeimar er sameiginlegt átak búningaáhugafólks og fólks í búningaíþróttamennsku tengdum búningaáhugamálum til að kynna og upphefja jákvæða og þroskandi leikhegðun fyrir fólk á öllum aldri, bæði sem áhugamál, íþrótt og fjölskylduvænt verkefni fyrir alla aldurshópa

Upprunlega varð hugmyndin til þar sem hópurinn sem stendur að hátíðinni sá að enginn vettvangur var fyrir unga sem aldna í áhugamálinu til að hittast, tengjast og gleðjast saman. Samkoman er hugsuð fyrir einstaklinga í jaðaráhugamálum tengdum búninga- og leikmunagerð en auðvitað eru allir velkomnir í búningi eður ei, á öllum stigum og hver eftir sínu nefi og þægilegheitum, enda eru mikilvægustu skilaboð Heima og Himingeima að vera maður sjálfur og leika sér.

Hátt í 4.000 manns mættu á fyrstu hátíðina í ágúst 2024, langt fram yfir áætlaðan fjölda, og tveim árum siðar, í september 2026 sóttu um 13.000 gestir Heima og Himingeima. Við ætlum að halda áfram og gera betur - og leika okkur um Heima og Himingeima.

Gallery

Teymið

Heimar og Himingeimar er skipulagt í samstarfi við Bókasafn Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæ. Teymið samanstendur af áhugafólki á búningaleikjum sem hafa bakgrunn í félagsvísindum, samfélagslegu starfi og viðburðastýringu með aðkomu skipulagðra leikjahópa hérlendis. Þau eru alger nörd, öll saman.

Að Heimum og Himingeimum standa:

Nánari upplýsingar

Heimar og Himingeimar er samkoma leidd af nördum sem eru orðin stór, einu-sinni-krökkum sem pössuðu ekki alveg inn í hópinn og brenna fyrir að börn og ungmenni finni sinn hóp og að þau sem eldri eru og hafa alltaf bara nördast í skápnum viti að þau eru ekki ein, eru velkomin og að enginn er „of gamall“ til að leika sér. Stefna Heima og Himingeima er að stuðla að upphafningu búningaáhugamálsins á jákvæðan, opinn og styðjandi máta og að leggja áherslu á félagslegan þátt spuna- og búningaleikja, sporna gegn félagslegri einangrun, skapa öruggt rými fyrir ungmenni sem ekki finna sig í almennum íþróttum þvert á kyn- og kyngervi, hampa leikgleði og efla sjálfstraust ungmenna, kenna handverk og hvetja til virkar þátttöku almennings í andlega gefandi skemmtun og samfélagi.

Samkoman er hugsuð fyrir einstaklinga í jaðaráhugamálum tengdum búninga- og leikmunagerð, ásamt endursköpun og spunaleikjum, til að kynnast, hittast og tengjast og rjúfa félagslega einangrun þvert á aldur og áhugamál, og brjóta á bak aftur staðalímyndir og kreddur. Með því að sýna allt sem er í boði og hvetja til þátttöku í efnisheimi á skapandi hátt og með ríka áherslu á samskipti og samveru þvert á aldur ásamt jákvæðum fyrirmyndum má efla sjálfstraust og styrkja fólk andlega til ytri samskipta.

Heimar og Himingeimar leggur áherslu á íþróttir sem krefjast sögulegs fatnaðar (s.s. sögulegar evrópskar skylmingar / HEMA) og búninga (leik- og sviðsbardagar, dans og skylmingar). Við skiljum mikilvægi þess að stunda heilbrigða hreyfingu og viljum upphefja slíkt innan hópa sem oft hafa ekki haft áhuga á hefðbundnum keppnisíþróttum.

Mikilvægi samneytis og að verja tíma með börnum og unglingum hefur mikið verið í deiglunni undanfarið og hér gefst frábært tækifæri fyrir foreldra að tengjast börnum sínum og ungmennum betur og jafnvel uppgötva sjálf áhugamál sem þau geta deilt með börnum sínum og stuðlar hátíðin þannig að heilbrigðum tengingum þvert á aldurshópa. Með því að opna þeim og foreldrum þeirra aðgang að reyndari einstaklingum innan hópsins getum við ekki aðeins ýtt undir skapandi vinnu heldur einnig kynnt þennan heim fyrir fólki sem þekkti hann ekki og boðið foreldrum ungmenna stuðning, en innan hópsins eru m.a. félags- og tómstundafræðingar, sálfræðingar og mannfræðingar.

Mikilvægt er að aðgangur og þátttaka öll sé ókeypis. Fólk býr við afar mismunandi kjör og því var lagt upp með frá upphafi að hafa viðburðinn eins aðgengilegan og mögulegt væri; efnahags- og félagslega og óháð líkamlegu atgerfi. Þátttaka í smiðjum, verkefnum, keppnum og samtalshópum er með öllu án endurgjalds og er samkoman að nær öllu leyti unnin af sjálfboðaliðum sem láta sig málefnið varða.

Ef foreldra og forráðamenn vantar frekari upplýsingar bjóðum við þeim að hafa samband við verkefnisstjóra Heima og Himingeima á [email protected] eða í síma 585 5690.

Við birtum grunnmynd af svæðinu þegar að nær dregur :)

Hvað eru Heimar og Himingeimar? Heimar eru samkoma búningaáhugafólks þvert á áhugamál og spannar allt frá menntuðum klæðskerum til myndasögunörda og bardagafólks.

Hver stendur fyrir þessu? Heimar og Himingeimar eru haldnir af fjölda félaga í búningaáhugamálum með stuðningi og styrk Bókasafns Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæjar. Heimar og Himingeimar eru styrkþegar Barnamenningarsjóðs.

Mega öll koma? Já. Öll velkomin, alltaf. Við erum öruggt rými, og hér er ekkert aldurstakmark - í hvoruga áttina.

Hvað kostar að koma? Ekkert. Ekki krónu með gati. Mættu bara.

Hvar er þetta? Bókasafni Hafnarfjarðar, verslunarmiðstöðinni Firði, 220 Hafnarfirði.

Hvernig kemst ég þangað? Auðvitað mælum við með því að taka strætó, en leiðir 1, 19, 21 og 55 stoppa allar beint fyrir framan dyrnar hjá okkur!

Hvað er búningur? Búningur, sama hvort við ræðum um þjóðbúning eða stormsveitarbrynju, er samansafn af klæðum og aukahlutum sem verða að sérstæðu útliti og/eða klæðnaði þegar við setjum þau saman.

Þarf ég að vera i búningi? Nei – ekki frekar en þú vilt. Það skiptir okkur öllu máli að þér líði vel. Vertu á gallabuxum eða í heimsins stærsta búningi, okkur finnst þú æði eins og þú ert.

Má ég mæta með sverð/vopn? Boffervopn (Larpvopn) eru leyfileg. Einungis þeir sem tilheyra Rimmugýg og HEMA Reykjavík mega hafa á sér stálvopn (live steel) og verður eggin að vera með öllu bitlaus. Önnur stálvopn verða gerð upptæk á meðan á samkomunni stendur. Skotvopn verða að vera augljóslega leikmunir og merkt með appelsínugulu hlaupi. Nerf-skotfæri eru ekki leyfð á svæðinu. Aukalega má taka fram að loftbyssur (BB guns) eru ólöglegar hérlendis.

Hvar skrái ég mig í Cosplay-keppnina? Skráning fyrir keppnina verður á hjf.is/cosplay - fyrir alla flokka, þ.m.t. undankeppi NCC. Opnað verður fyrir skárningu í apríl 2027.

Hvar er klósettið? Á aðalganginum til vinstri frá inngangi, og svo niðri við hliðina á skóbúðinni

Ég er svangur/svöng/svangt! Við mælum með öllum veitingastöðunum í Firði!

Má ég taka myndir? Að klæðast búningi er ekki samþykki fyrir myndatökum. Það má taka myndir, en munið að fá samþykki viðkomandi fyrst. Virðið persónulegt rými, og munið að sumir búningar skerða hreyfigetu og skynfæri. Komið fram við aðra eins og þið viljið láta koma fram við ykkur.
Og taggið okkur á Instagram (Bókasafn Hafnarfjarðar) og TikTok (Hafnarfjarðarbær).

Mér líður illa, hvað á ég að gera? Hvað sem kemur upp, hvað sem gerist - við erum hér. Sérmerkt Safe-Space starfsfólk er alltaf tilbúið að taka á móti þér. Hvort sem þú upplifir þig undir pressu vegna fjöldans, þú verður fyrir áreiti, meiðist, eða líður illa þá erum við hér.
Það er alltaf einn öruggur starfsmaður í hverjum heimi og svæði sem getur aðstoðað og kallað til hjálp. Þau eru merkt með hárauðri barmnælu. Einnig eru slíkir starfsmenn á vappi. Gríptu einn – og við hjálpum þér.

Ég meiddi mig! Í afgreiðslunni er hægt að fá plástra og fleira.

Búningaves? Í smiðunni er fullt af snillingum sem geta hjálpað, og þau eru staðsett fyrir utan Cosplay Rest Area. Þau geta hjálpar með smávægilegar aðdyttingar/redd. Athugið að starfsfólk er ekki á staðnum til að aðstoða fólk við að klæða sig eða sinna stærri viðgerðum.

Get ég klætt mig á staðnum? Við erum ekki með sérhæfða klefa, en það má nota Cosplay Rest Area til að græja sig. Þeir búningar sem þurfa aðstoð eru ábyrgir fyrir að koma með sitt eigið aðstoðarfólk. Bókasafnið getur ekki boðið upp á geymslurými. Engin ábyrgð er tekin á persónulegum eigum skildum eftir í rýminu.

Mig langar í svona Himingeimabol! Ekkert mál - þú getur keypt svoleiðis hér

Hvern eiga fjölmiðlar að hafa samband við? Fjölmiðlar geta haft samband við Unni Möller, verkefnastjóra Heima og Himingeima í tölvupósti ( unnurmoller [hjá] hafnarfjordur.is ) eða í síma 621-4679.

 

Öll dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

Himingeimar image
Himingeimar